Innanhússstílisti aðstoðar við að fegra og móta rými þegar ekki er þörf á stórum skipulagsbreytingum. Unnið er út frá núverandi rými og skipulagi, með áherslu á uppröðun húsgagna og fylgihluta til að nýta rýmið sem best og skapa notalega heildarmynd.
Innanhússstílisti veitir ráðgjöf um litasamsetningar, húsgagnaval, skrautmuni, efnisval, lýsingu, gardínur og önnur smáatriði sem skipta máli í heildarútliti rýmisins. Markmiðið er að skapa fallegt og vel samræmt rými sem endurspeglar þarfir og stíl viðskiptavinarins.
Í auknum mæli annast innanhússstílisti með allt ferlið, frá upphafi til enda. Það felur í sér að velja og kaupa þau húsgögn og fylgihluti sem vantar í rýmið, sjá um afhendingu og lokastíliseringu þegar allt er komið á sinn stað.
Einnig vinnur innanhússstílisti í samstarfi við innréttingafyrirtæki og aðra fagaðila eftir þörfum verkefnisins.
Hægt er að velja um nokkrar þjónustuleiðir, allt eftir þörfum hvers verkefnis. Hvort sem um er að ræða innanhússráðgjöf í eitt skipti (BRONS) til að fá innblástur og skýra sýn á næstu skref, fjarráðgjöf, þrívíddarteikningu þar sem rýmið er teiknað upp í réttri stærð og hlutföllum, eða aðstoð við val á húsgögnum og skrautmunum (SILFUR & GULL), þá er markmiðið alltaf að skapa heildstæða og vel útfærða lausn.
BK Decor býður upp á nokkrar þjónustuleiðir. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að kynna þér úrvalið og finna þá leið sem hentar þér best.
Ég get heilshugar mælt með Beggu! Hún gaf sér góðan tíma til að hlusta á óskir mínar og frá fyrstu stundu skein af henni fagmennskan. Hún skildi þarfir mínar og smekk fullkomlega og skapaði fallegt og hlýlegt rými. Allt ferlið var afar þægileg- góð samskipti og skýr sýn. Ég mæli hiklaust með Beggu fyrir alla sem vilja vandaðan og persónulegan stílista! Kær kv Elisa
Það hefur verið frábært að vinna með Beggu, get hiklaust mælt með! Hún hjálpaði okkur að ná yfirsýn yfir framkvæmdir heimafyrir og setur hönnunina svo skipulega og vel upp. Eftir að hún kom og aðstoðaði okkur með verkefnið sá ég allt mun betur fyrir mér. Begga kemur með góðar hugmyndir og ég kann að meta að hún kemur með nokkra möguleika t.d í efnisvali.
"Við vorum í mestu vandræðum með að innrétta nýju íbúðina okkar og Begga bjargaði okkur algjörlega. Kom með ferskar hugmyndir varðandi öll þau atriði sem við höfðum verið að vandræðast með. Bæði hefur hún teiknað upp rýmin fyrir okkur og einnig aðstoðað við val á litum og efnum. Við getum því ekki annað en mælt heilshugar með þjónustunni. " Kveðja Benedikt og Ólöf
Við höfum nýtt okkur fjarráðgjöf hjá Beggu og erum virkilega ánægð með þjónustuna. Hún kom með góðar lausnir og ráðlagði varðandi samsetningu á lítum og val á húsgögnum. Hún kom einnig með mjög góðar ábendingar um húsgögn og fylgihluti sem auðveldaði okkur svo mikið að velja það sem við vildum kaupa inn á heimilið okkar. Við vorum svo ánægð með þjónustuna þegar við gerðum breytingar hjá okkur fyrir nokkrum árum að við leituðum aftur til hennar þegar við fluttum nýlega og erum mjög sátt með nýja heimilið okkar.
Mín upplifun af Beggu var ótrúlega góð. Hún svaraði öllum tölvupóstum hratt og örugglega, fylgdi eftir þeim hugmyndum sem hún lagði fyrir okkur og hún setti fram hugmyndirnar á mjög þægilegan hátt fyrir okkur. Begga kom í heimsókn til okkar áður en hún sendi okkur hugmyndirnar og hún er með ótrúlega góða nærveru og gott vision yfir því hvernig hlutirnir koma vel út. Margrét Þórhildur Maríudóttir hjá Landsnet
Við fengum Beggu hjá BK Decor til að aðstoða okkur við fíniseringar á nýja heimilinu okkar. Begga var mjög þægileg í öllum samskiptum, hún kom með flottar hugmyndir í samræmi við okkar eigin óskir. Niðurstaðan varð hlýlegt og smart heimili. Við mælum svo sannarlega með BK Decor. Bjarnþóra M. Pálsdóttir