Við sérhæfum okkur í stíliseringu og innanhússráðgjöf fyrir heimili og fyrirtæki.
Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni og veitum almenna innanhússráðgjöf um skipulag rýma, lita- og efnisval, lýsingu, val á húsgögnum og fylgihlutum – bæði fyrir heimili og fyrirtæki. Ástríða okkar er að hjálpa fólki sem vantar leiðsögn við að skapa fallegt, notalegt og vel skipulagt heimili eða vinnurými.
Við bjóðum upp á BRONS – SILFUR – GULL þjónustuleiðir sem fela í sér mismikla þjónustu. Þjónustan spannar allt frá stuttri heimsókn þar sem við komum með hugmyndir og veitum innblástur, yfir í heildarlausn þar sem við mælum og teiknum upp rými, setjum fram moodboard, veljum húsgögn, gólfefni, liti, fylgihluti og ljós, og aðstoðum við uppröðun þegar allt er komið á sinn stað.
Einnig bjóðum við upp á fjarráðgjöf, sem hefur verið sérstaklega vinsælt hjá viðskiptavinum á landsbyggðinni.