bkdecor.is

 

S I L F U R 

 Fyrir þá sem vilja heildstæða hönnun og skýra         útfærslu








 
Heildstæð hönnun fyrir eitt rými eða fleiri.
Fyrir þig sem vilt skýra heildarsýn, faglega útfærslu og sérval á húsgögnum — með skipulagi sem virkar í daglegu lífi.
Innifalið
  • Heimsókn á staðnum og ráðgjöf
  • Mælingar og teiknað skipulag í tví- og/eða þrívídd
  • Tvær útfærslur að rýminu
  • Moodboard með stíl- og litatillögum
  • Sérval á húsgögnum og fylgihlutum
  • Innkaupalisti
  • Ein umferð athugasemda eftir afhendingu hönnunargagna

Unnið á tímagjaldi, 16.900kr + VSK . Lágmarkstímafjöldi er 6 klst.

 

B R O N S 

með stíliseringu

Innanhússráðgjöf með stíliseringu fyrir eitt afmarkað rými (t.d. alrými, stofa eða svefnherbergi)
Fyrir þig sem vilt nýtt flæði, betri uppröðun og skýrari heildarmynd — án þess að fara í heildarhönnun.
Innifalið:
  • 2-3 klst heimsókn á staðnum
  • Endurröðun húsgagna og skrautmuna
  • Tillögur að bættum áherslum og heildarsvip
  • Ráðgjöf um næstu skref
Verð: 79.000 kr + VSK*

*Verð miðast við eitt rými á höfuðborgarsvæði.

Viðbætur: 
  • Auka rými: + 39.000 kr + VSK
  • Moodboard + innkaupalisti: + 40.000 kr + VSK

 

B R O N S 

Fyrsta skrefið að betra flæði og heildarsvip

Stutt og markviss innanhússráðgjöf fyrir eitt eða fleiri rými.
Fyrir þig sem vilt fá skýra leiðsögn, nýtt sjónarhorn og faglega ráðgjöf um uppröðun, flæði og heildarsvip — áður en þú ferð í frekari framkvæmdir.
Innifalið
  • 1 klst heimsókn á staðnum
  • Ráðleggingar um uppröðun húsgagna og fylgihluta
  • Tíminn nýttur í það sem þú vilt leggja áherslu á
  • Hugmyndir að næstu skrefum
Verð: 45.000 kr + VSK*

* Verð miðast við höfuðborgarsvæði.

* Eftir fyrstu klukkustund reiknast tímagjald (16.900 kr + VSK pr/klst).

Utan höfuðborgarsvæðis (Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Grindavík, Reykjanesbær)

Verð: 55.000 kr + VSK*

* Eftir 1 klst tekur við tímagjald (16.900 kr + VSK pr/klst).

 

F J A R R Á Ð G J Ö F 

Heildarsýn fyrir rýmið þitt

Heildstæð hönnun fyrir eitt afmarkað rými – unnið alfarið í gegnum fjarfund
Langar þig að nýta rýmið þitt betur áður en þú fjárfestir í nýjum húsgögnum? Með faglegri skipulagsvinnu færðu skýra sýn á möguleikana – áður en þú ferð í búðina.
Þú sendir teikningar, myndir og mælingar – og færð í staðinn tillögur sem mynda samræmda og vel útfærða heild.
Þetta er frábær grunnur áður en farið er í húsgagnaleiðangur – eða þegar þú vilt endurskipuleggja núverandi rými án þess að byrja frá grunni.
Innifalið
  • Greining á rýminu út frá myndum og mælingum

  • Tvær útfærðar tillögur að skipulagi í þrívídd

  • Skýra og samræmda heildarsýn

  • Samantekt í PDF sem þú getur unnið áfram með

Verð: 99.000 kr + VSK

 

Viðbætur: 

Moodboard + innkaupalisti: 40.000kr + VSK

 

G U L L 

Heildarumsjón og hönnun frá A – Ö

Sérsniðin toppþjónusta fyrir þá sem vilja fela fagmanni umsjón með öllu ferlinu – frá fyrstu hugmynd að fullbúnu og tilbúnu rými.
Hentar fyrir viðskiptavini sem búa erlendis, eru í fasteignakaupum eða vilja að allur undirbúningur og framkvæmd sé í öruggum höndum.
Innifalið

• Heildargreining og þarfagreining
• Skipulag, teikningar og hönnunartillögur
• Val á efnum, innréttingum og húsgögnum
• Innkaupaumsjón og samskipti við birgja
• Samráð og samskipti við verktaka
• Eftirlit og eftirfylgni í gegnum ferlið
• Stílisering og frágangur fyrir afhendingu

Verð: Samkvæmt umfangi og eðli verkefnis

 

Fyrirtækjaþjónusta

Hönnun og heildarþjónusta

BK Decor býður upp á faglega innanhússhönnun fyrir fyrirtæki og atvinnurými þar sem markmiðið er að skapa sterka heildarímynd og faglega upplifun.
Hönnunin er unnin með þarfir rekstursins að leiðarljósi — hvort sem um er að ræða skrifstofu, verslun, snyrtistofu, Airbnb eða annað þjónusturými.
Þjónustan getur meðal annars falið í sér:

• Skipulag og rýmisgreining
• Hönnunartillögur og moodboard
• Litaval og efnisval
• Val á húsgögnum og lýsingu
• Heildarútfærslu og stíliseringu
• Innkaupaumsjón og samskipti við birgja
• Eftirfylgni í gegnum ferlið

BK Decor getur, ef óskað er, séð um allt ferlið frá A–Ö – frá hugmyndavinnu að fullbúnu rými.

Verð: Samkvæmt umfangi og eðli verkefnis